Fótbolti

Vitor Baia: Mourinho hefði verið góður þjálfari fyrir Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jose Mourinho.
Jose Mourinho. Mynd/Nordic Photos/Getty
Vitor Baia, fyrrum markvörður Barcelona, er örugglega einn af fáum Barcelona-mönnum sem væri tilbúinn að bjóða Jose Mourinho, þjálfara erkifjendanna í Real Madrid, velkominn til Barcelona. Vitor Baia hefði viljað sjá Mourinho þjálfa Barcelona-liðið.

„Hann er besti þjálfarinn í heimi að mínu mati og hann er mjög sérstök manneskja," sagði Baia í sjónvarpsviðtali við Esports COPE. Jose Mourinho vann hjá Barcelona árunum 1996 til 2000 sem aðstoðarmaður Bobby Robson og Louis van Gaal.

„Mourinho hefði verið góður þjálfari fyrir Barcelona því hann á mjög gott með að aðlagast öllum menningarheimum," sagði Vitor Baia.

„Sá Mourinho sem við sáum hjá Chelsea var allt annar en sá Mourinho sem var hjá Porto. Hann var síðan allt önnur týpa hjá Inter. Við erum síðan að sjá nýjan Mourinho hjá Real Madrid," sagði Vitor Baia.

Það hefur verið orðrómur um að Jose Mourinho hætti með Real Madrid liðið í vor en hann sjálfur hefur neitað því í viðtölum við spænska fjölmiðla.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×