Fótbolti

Theódór Elmar kominn til Randers

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Theódór Elmar í leik með íslenska landsliðinu.
Theódór Elmar í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Valli
Theódór Elmar Bjarnason er genginn til liðs við Randers í Danmörku og samdi við liðið til ársins 2015. Þetta kom fram á heimasíðu félagsins í dag.

Elmar, eins og hann er kallaður, hefur verið á mála hjá IFK Gautaborg í Svíþjóð en var ekki lengur inn í myndinni hjá þjálfara liðsins.

Hann hóf ferilinn hjá KR en hefur síðan þá verið hjá Celtic í Skotlandi, Lyn í Noregi og nú síðast í Gautaborg. Þar skoraði hann átta mörk í alls 94 leikjum en hann á að baki tíu leiki með A-landsliði Íslands.

Randers er sem stendur í öðru sæti dönsku B-deildarinnar með 30 stig, fimm á eftir toppliði Esbjerg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×