Fótbolti

Barcelona mætir Real Madrid í bikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexis Sanchez skoraði fyrir Barcelona í kvöld.
Alexis Sanchez skoraði fyrir Barcelona í kvöld.
Það er nú endanlega ljóst að Barcelona og Real Madrid munu eigast við í fjórðungsúrslitum spænsku bikarkeppninnar eftir að Börsungar unnu 2-1 sigur á Osasuna í kvöld.

Barcelonan vann fyrri leikinn á heimavelli 4-0 og því 6-1 samanlagt. Alexis Sanchez og Sergi Roberto skoruðu mörk Börsunga í kvöld.

Áætlað er að fyrri leikur liðanna fari fram í næstu viku og sá síðari eftir tvær vikur.

Þetta eru viðureignirnar í fjórðungsúrslitum:

Espanyol - Mirandés

Athletic Bilbao - Real Mallorca

Real Madrid - Barcelona

Valencia - Levante




Fleiri fréttir

Sjá meira


×