Fótbolti

Pep Guardiola búinn að framlengja samning sinn við Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona.
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona. Mynd/Nordic Photos/Getty
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, er búinn að samþykkja að framlengja samning við við Barcelona til enda næsta tímabils. Guardiola mun undirrita nýja samninginn á næstu dögum.

Guardiola vill ekki gera langa samninga í einu og hefur ávallt samið til eins árs til þess að halda sjálfum sér á tánum. Það er í raun engin breyting á því núna þótt að samningurinn sé undirritaður áður en tímabilinu líkur.

Barcelona er búið að vinna átta titla undir stjórn Pep Guardiola síðan að hann tók við liðinu af Frank Rijkaard árið 2008. Barcelona hefur unnið spænsku deildina bæði tímabilin og er einnig með sjö stiga forskot í deildinni á þessu tímabili.

Barcelona liðið sett nýtt met á Spáni um síðustu helgi þegar liðið vann sinns sextánda deildarleik í röð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×