Fótbolti

Sergio Ramos: Ég myndi velja Cristiano Ronaldo frekar en Lionel Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sergio Ramos og Cristiano Ronaldo.
Sergio Ramos og Cristiano Ronaldo. Mynd/Nordic Photos/Getty

Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid og spænska landsliðsins, blandaði sér í umræðuna um hvort Cristiano Ronaldo sé betri leikmaður en Lionel Messi.

Það hefur verið mikil umræða um þessa tvo snillinga eftir að þjálfari Atletico Madrid kallaði Messi, Di Stefano 21. aldarinnar eftir að Argentínumaðurinn skoraði þrennu á móti Atletico um helgina.

„Þetta yrði örugglega erfið ákvörðun fyrir alla að þurfa að velja á milli þeirra og þetta fer örugglega eftir hverjum og einum. Ég myndi samt taka Cristiano af því að hann spilar með mínu liði," sagði Ramos.

Lionel Messi og Cristiano Ronaldo hafa báðir skoraði 24 deildarmörk á tímablinu, Messi í 23 leikjum og Ronaldo í 26 leikjum. Messi hefur gefið 16 stoðsendingar en Ronaldo 7.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×