Fótbolti

Tólfti sigur Barcelona í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Villa fagnar í kvöld.
David Villa fagnar í kvöld. Nordic Photos / AFP
Barcelona vann í kvöld sinn tólfta sigur í röð í spænsku úrvalsdeildinni og virðast hreinlega vera óstöðvandi.

Börsungar eru á ótrúlegum spretti. Í kvöld unnu þeir 4-0 sigur á Deportivo en síðustu sjö leiki hefur Barcelona unnið með markatölunni 32-2. Sannarlega ótrúlegar tölur.

David Villa kom Barcelona yfir í kvöld með marki á 26. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Lionel Messi skoraði svo sitt átjánda mark í úrvalsdeildinni í vetur er hann skoraði glæsilegt mark, beint úr aukaspyrnu.

Andres Iniesta kom svo Barcelona í 3-0 með flottu skoti og Pedro innsiglaði svo sigurinn með marki eftir sendingu Messi.

Barcelona er með 49 stig af 54 mögulegum í efsta sæti deildarinnar. Real Madrid er fimm stigum á eftir en getur minnkað muninn aftur í tvö stig með sigri á Villarreal, sem er í þriðja sæti deildarinnar, á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×