Fótbolti

Real Madrid lagði Espanyol manni færri

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Cristiano Ronaldo í baráttunni í kvöld.
Cristiano Ronaldo í baráttunni í kvöld. Getty Images
Real Madrid vann í kvöld góðan útisigur á Espanyol, 0-1, í spænsku deildinni. Real Madrid lék einum leikmanni færri því markvörðurinn Iker Casillas fékk að líta rauða spjaldið á annarri mínútu leiksins.

Það kom þó ekki að sök því vinstri bakvörðurinn Marcelo skoraði sigurmark Real Madrid á 24. mínútu. Þrátt fyrir þunga sókn hjá Espanyol náðu Madridingar að halda hreinu og tryggja sér öll þrjú stigin.

Sigurinn er feiki mikilvægur fyrir Real Madrid sem þar með hafa minnkað forystu Barcelona á toppi spænsku deildarinnar niður í fimm stig en Barcelona gerði 1-1 jafntefli við Sportin Gijon í gærkvöldi.

Úrslit dagsins í spænska boltanum:

Hercules 2-1 Zaragoza

Levante 1-0 Almeria

Malaga 2-2 Getafe

Real Sociedad 1-0 Osasuna

Deportivo La Coruna 1-0 Villarreal

Espanyol 0-1 Real Madrid








Fleiri fréttir

Sjá meira


×