Fótbolti

Mourinho: Kaká verður ekki seldur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Real Madrid var búið að setja Brasilíumanninn Kaká á sölulista á dögunum en nú segir þjálfari liðsins, José Mourinho, að ekki komi til greina að selja leikmanninn.

Kaká er nýbyrjaður að spila á nýjan leik eftir að hafa verið frá í fimm mánuði vegna meiðsla.

"Hann verður áfram hjá Real. Það tók langan tíma að koma honum á lappir. Hann tjáði mér síðan að hann vilji sanna að hann sé Real-maður. Hann er í þeirri stöðu núna að geta sannað það og mun ekki fara. Það er endanleg ákvörðun," sagði Mourinho.

Enginn skortur var samt á félögum til að kaupa leikmanninn og þá sérstaklega á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×