Segja meira en 250 börn hafa verið drepin 30. nóvember 2011 13:00 Rannsóknarnefndin kynnir niðurstöður Yakin Erturk, Paolo Pinheiro og Karen Abu Zayd skýra frá morðum, nauðgunum og pyntingum.nordicphotos/AFP
Sýrlenskir hermenn hafa drepið hundruð barna og framið ýmsa aðra glæpi gegn mannkyni frá því að stjórnvöld hófu harkalegar aðgerðir gegn mótmælendum snemma á árinu. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem hefur rætt við hundruð vitna og fórnarlamba frá Sýrlandi. „Meðal þessara glæpaverka eru morð, pyntingar, nauðganir og annars konar kynferðislegt ofbeldi,“ segir Paolo Pinheiro, formaður nefndarinnar. „Við erum með mjög traust gögn í höndunum.“ Í skýrslunni kemur fram að meira en 250 börn hafi verið drepin, þar á meðal tveggja ára stúlka sem var skotin til bana til þess eins að koma í veg fyrir að hún tæki þátt í mótmælum þegar hún yrði eldri. „Pyntingum var beitt jafnt á börn sem fullorðna,“ segir í skýrslunni. Einnig kemur þar fram að stjórnarherinn hafi skotið af handahófi á óvopnaða mótmælendur. Þá hafi hermenn fengið beinar skipanir um að skjóta mótmælendur til bana í þeim tilgangi að stöðva mótmæli. Vaxandi alþjóðlegur þrýstingur hefur verið síðustu daga á Bashar al-Assad Sýrlandsforseta að fara frá völdum, meðal annars frá Arababandalaginu og Vesturlöndum.- gb
Fréttir Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Fleiri fréttir Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Sjá meira