Viðskipti innlent

Milestone í mál við Makedóna

Þrotabú Milestone reynir nú að innheimta skuld upp á eina milljón evra, jafnvirði um 160 milljóna króna, af makedónskum kaupsýslumanni, sem var viðskiptafélagi Wernersbræðranna Karls og Steingríms fyrir bankahrun. Málflutningur um skuldina fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Í viðskiptum með makedónsku lyfsölukeðjuna Zegin árið 2006 myndaðist krafa á manninn, Blagoj Mehandiziski, sem einnig er stór hluthafi í keðjunni. Málareksturinn nú snýst einkum um það hvar rétt sé að höfða málið, á Íslandi, í Makedóníu eða Austurríki, eins og sagði í gerðardómsákvæði í upphaflegum samningum.- sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×