Innlent

Ótvíræður árangur hjá ríkisstjórninni

Steingrímur J. sigfússon
Steingrímur J. sigfússon
Sjöundi landsfundur Vinstri grænna hófst á Akureyri í gær. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, flutti setningarræðu þar sem hann leit yfir hið pólitíska svið.

„Þá blasir við að það hefur unnist vel úr erfiðri, sumir sögðu vonlausri, stöðu Íslands. Hagvöxtur er genginn í garð. Skerðing lífskjara hefur verið stöðvuð og kaupmáttur er farinn að aukast,“ sagði Steingrímur sem ræddi um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Hann bætti síðar við að nú þyrfti meira að fara að gerast í fjárfestingu, uppbyggingu og fjölgun starfa.

Steingrímur rifjaði upp erfiða stöðu landsins í kjölfar bankahrunsins og viðvörunarorð Vinstri grænna árin á undan. Hann sagði baráttu ríkisstjórnarinnar hafa snúist um endurheimt efnahagslegs sjálfstæðis og framtíð velferðarsamfélagsins. Sú barátta ynnist ekki án fórna og þótt aðgerðir ríkisstjórnarinnar á sviði ríkisfjármála hefðu verið sársaukafullur hefðu þær verið óumflýjanlegar.

Steingrímur sagði breytingar ríkisstjórnarinnar á skattkerfinu hafa verið í samræmi við pólitíska stefnumótun flokksins. Þær hefðu miðast við meiri tekjujöfnun og græna skatta, svo eitthvað sé nefnt. Þá benti hann á að helmingur hjóna greiddi nú lægra hlutfall af tekjum sínum í tekjuskatt og útsvar, þar með talinn fjármagnstekjuskatt, en árið 2008.

Loks fjallaði Steingrímur um valkosti Íslendinga í peningamálum. Hann sagði íslensku krónuna hafa reynst okkur vel á erfiðum tímum og sagðist sannfærður um að atvinnuleysi hefði farið í háa tveggja stafa prósentutölu ef Íslendingar hefðu ekki haft eigin gjaldmiðil síðustu ár. Þá hefði reynsla annarra þjóða sýnt að alveg eins væri hægt að setja sig á hausinn í evrum og krónum.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×