Innlent

Haraldur kallar málflutning Gylfa „kjaftæði“

Haraldur Benediktsson
Haraldur Benediktsson
Gylfi Arnbjörnsson
Bændasamtök Íslands gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Gylfa Arnbjörnssonar, forseta Alþýðusambands Íslands, um matvælaverð og verðbólgu. Haraldur Benediktsson, formaður samtakanna, sagði í samtali við Ríkisútvarpið í gær að málflutningur Gylfa væri „kjaftæði“.

Gylfi sagði verðhækkanir á íslenskum matvælum helstu orsök hækkandi verðbólgu í samtali við Ríkisútvarpið í fyrradag. Verðbólga mældist 5,7 prósent í september og hafði þá hækkað um 0,7 prósentustig milli mánaða.

Í yfirlýsingu frá Bændasamtökunum segir að verð innlendra búvara, án grænmetis, hafi hækkað um 22,5 prósent frá september 2008 sem sé nánast sama prósenta og almennt verðlag. Þá hafi verð innfluttra matvara hækkað talsvert meira á tímabilinu.

Þá segir enn fremur í yfirlýsingunni að bændur hafi frá bankahruni lagt sitt af mörkum til að halda niðri vöruverði. Samningar hins opinbera við bændur hafi verið endurskoðaðir og það verið dregið í lengstu lög að hækka verð þrátt fyrir miklar hækkanir á verði aðfanga.

ASÍ brást við yfirlýsingu Bændasamtakanna síðar í gær. Í pistli á vefsíðu sambandsins sagði Gylfi hóflegar launahækkanir verkafólks ekki réttlæta 10 prósenta hækkun á landbúnaðarafurðum upp á síðkastið, eins prósents hækkun hefði nægt. Þá sagði Gylfi fullyrðingar Haraldar eiga fátt skylt við veruleikann.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×