Hafa lækkað um 33% síðan í fyrra 25. ágúst 2011 05:30 Skólabækur Könnun ASÍ sýnir mikinn verðmun á skólabókum á milli verslana.fréttablaðið/valli
Skólabækur fyrir framhaldsskóla hafa lækkað í verði um allt að 33 prósent milli ára, samkvæmt nýrri verðlagskönnun ASÍ. Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á bókum í verslunum á höfuðborgarsvæðinu miðvikudaginn 17. ágúst síðastliðinn. Verð var kannað á 23 algengum kennslubókum sem framhaldsskólanemar þurfa að kaupa. Verð bókanna hækkaði mest hjá Pennanum Eymundsson milli ára en lækkaði á sama tíma hjá Griffli, Office 1 og Iðnú. Verðmunur milli verslana hefur aukist milli ára. Til að mynda hefur stærðfræðibókin „Stærðfræði 3000“ hækkað um 6 prósent í verði hjá Pennanum Eymundsson, stóð í stað hjá Bóksölu stúdenta, en lækkaði um 14 prósent hjá Office 1. Mesta hækkun á milli ára var hjá Pennanum Eymundsson sem hefur hækkað verðið á 18 titlum af þeim 23 sem skoðaðir voru, en hækkunin var undir tíu prósentum í flestum tilvikum. Mesta lækkun á milli ára var hjá Office 1, en þar hafði verðið lækkað á 16 bókatitlunum af 17 sem fáanlegir voru. Lækkunin var oftast á bilinu tíu til tuttugu prósent. Mesta hækkunin á milli ára var á enskubókinni „Lord of the Flies“ sem hækkaði um 53 prósent hjá Bóksölu stúdenta. Mesta lækkunin á milli ára var á sömu bók hjá Griffli um 33 prósent. Verð var kannað í Bóksölu stúdenta Hringbraut, Pennanum Eymundsson Kringlunni, Office 1 Skeifunni, Griffli Skeifunni og Bókabúðinni Iðnú Brautarholti.- sv
Fréttir Mest lesið Fer í hart við konuna sem sakaði hann um nauðgun Erlent „Þetta eru auðvitað náttúruhamfarir“ Innlent Gaseitrun talin ólíkleg þrátt fyrir gasleka Erlent Hringdi út um allt en samt komust ekki allir í tæka tíð Innlent Afnemur handhafalaun vegna forsetavalds Innlent Blóðug slagsmál tveggja landsfundargesta Innlent Þykir leiðinlegt hvernig fundurinn fór Erlent Alvotech fær ekki að byggja leikskóla Innlent „Steinhissa“ þegar honum var birt ákæra Innlent Vilja nýjan flugvöll á Ísafirði Innlent Fleiri fréttir Vilja nýjan flugvöll á Ísafirði „Þetta eru auðvitað náttúruhamfarir“ Verðlaunabændur vilja norskar kýr til landsins Afnemur handhafalaun vegna forsetavalds Alvotech fær ekki að byggja leikskóla Hringdi út um allt en samt komust ekki allir í tæka tíð Viðbrögð við hagræðingartillögum og stofnun varnarmálanefndar Verksamningur undirritaður um þriðja áfanga Dynjandisheiðar Fimmtíu og fjórir sækja um stöðu þingmanns hjá borginni Helga Rósa nýr formaður Fíh Gera ráð fyrir sparnaði upp á meira en 70 milljarða Blóðug slagsmál tveggja landsfundargesta Ætlar að flýta öryggis- og varnarmálastefnu og stofna nýja nefnd Sýna á spilin með 25 liða aðgerðaáætlun Ætlar að tryggja flug til Ísafjarðar Þorgerður lætur ekki nettröllin hræða sig Bryggjunni í Vogum lokað vegna skemmda Kennarar samþykkja kjarasamning Með fimmtán kíló af grasi í töskunni Úr einu ráðuneyti í annað: Upplýsingafulltrúi verður verkefnastjóri áhersluverkefna Bæjarstjóri sleginn yfir ákvörðun Icelandair Bæjarstjóri sleginn yfir ákvörðun Icelandair Voru að meta skemmdir eftir fyrri lægð þegar aldan gleypti þá Sjálfstæðisflokkurinn hafi aldrei verið í verri stöðu Kynntu hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar „Steinhissa“ þegar honum var birt ákæra Þung færð fyrir vestan og víðar Ísland gæti orðið leiðandi í notkun hugvíkkandi efna Icelandair hættir flugi til Ísafjarðar Telur einnar nætur virði að reyna að fá Spasskí Sjá meira