Skoðun

Amma Davíðs

Við greiðum ekki skuldir óreiðumanna," var sú örlagaríka setning sem þáverandi seðlabankastjóri, Davíð Oddsson, lét falla í frægum sjónvarpsþætti, rétt eftir hrunið. Hann vitnaði í ömmu sína, en það gera stjórnmálamenn gjarnan, ef þeir vilja láta taka mark á sér. Bretar trúðu ömmu Davíðs og settu Ísland og seðlabanka þess á bekk með hryðjuverkalöndum. Þar með voru eyðilagðir tugir milljarða verðmæta eða meir, því með þessari ákvörðun urðu miklar eignir verðlausar. Þessi aðgerð jafngilti í senn viðskiptabanni og útskúfun úr siðaðra manna samfélagi. Enginn þorði lengi vel að rétta okkur hjálparhönd nema Færeyingar og allir ruku til og reyndu að losa sig úr tengslum við Ísland. Sjaldan hefur landið sokkið dýpra í áliti útlendinga. Þetta voru dýr orð.



Vopnabróðir hins pólitíska seðlabankastjóra fyrrverandi er hinn pólitíski forseti landsins, en sameiginlega eru þeir nú í árangursríkri, pólitískri herför gegn Evrópusambandinu. Forsetanum fannst ekki nóg að gert og vildi sýna vini sínum að hann gæti bætt um betur. Tvívegis fékk hann þjóðina til að fella samninga um að greiða „skuldir óreiðumanna", því hann vissi að þjóðin trúði ömmu Davíðs miklu betur en Steingrími Joð. Nú virðast hins vegar hafa vaknað efasemdir hjá forsetanum pólitíska um að amma Davíðs sé ef til vill ekki óskeikul og vill hann nú borga upp í „skuldir óreiðumanna" með Landsbankapeningum, svo langt sem þeir duga. Við ætlum sem sagt að borga það af „skuldum óreiðumanna" sem okkur sýnist. Þetta er afar frjó og skilvís ný regla í alþjóðaviðskiptum, enda segir sá Pólitíski að við, aðeins tveimur og hálfu ári eftir hrun, séum á ný komin í forystu meðal ríkja heims við að endurskapa viðskiptasiðferði í heiminum. Aftur orðin fyrirmynd. Þannig kunnum bæði við og hann best við okkur.



Vissulega greiðum við ekki skuldir óreiðumanna, en við njótum gjarnan afurða þeirra okkur til hagsbóta. Lánin sem mynda skuldirnar voru að hluta notuð hér innanlands til margvíslegra framkvæmda og uppbyggingar. Um 40% af áætluðum byggingarkostnaði Tónlistarhússins Hörpu voru t.d. byggð fyrir erlent lánsfé Landsbankans, sem lánveitendur hafa nú glatað. Skyldu það kannski hafa verið Icesave-peningar, sem við viljum að sjálfsögðu ekki greiða? Þúsundir íbúða, margvíslegar framkvæmdir ríkis og sveitarfélaga, bifreiðar, flugvélar og margt fleira var byggt, framkvæmt eða keypt fyrir erlent lánsfé, sem við borgum ekki eða bara að hluta, enda greiðum við ekki „skuldir óreiðumanna". Þeir peningar sem eru á bak við „skuldir óreiðumanna" urðu að eignum, sem ýmist eru í notkun eða verða síðar nýttar af þjóðinni. Við fáum þannig arf eftir óreiðumennina. Að kalla þetta tvískinnung, hvað þá hræsni, er í hæsta máta ósanngjarnt. Ekkert er fjær sanni.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×