Skoðun

Ríkisstjórnin ræður örlögum sínum

Björn Þór Sigbjörnsson skrifar
Að virtri beiðni umbjóðanda yðar, þ.m.t. tilgangi hennar, þeirrar fjárhæðar sem um er að ræða, þeim hagsmunum sem eru í húfi, þeim gögnum sem beiðninni fylgdu og þeim sjónarmiðum sem lögð eru til grundvallar af hálfu bankans við mat á henni, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga um gjaldeyrismál, er það niðurstaða Seðlabankans að fallast á beiðnina og er félögunum saman veitt heimild til úttektar af gjaldeyrisreikningi að fjárhæð 7.270 evrur og 150 sterlingspund.

Ofangreint er hvorki frá þeim tíma þegar amma var ung né frá Norður-Kóreu. Þetta var skrifað í Seðlabanka Íslands í fyrradag og undirritað af aðstoðarseðlabankastjóranum og staðgengli forstöðumanns gjaldeyriseftirlits bankans.

Samherji má sem sagt taka út sem svarar til rúmlega einnar milljónar króna svo starfsmenn fyrirtækisins geti sótt sjávarútvegssýninguna í Brussel í næstu viku.

Það er ekki síst út af svona rugli sem álit fólks á ríkisstjórninni er lítið. Ekki þarf forsögu Þorsteins Más forstjóra, um að þrettán manns hafi komið að málinu og eytt í það fimmtán klukkutímum, til að hneykslast.

Í óskapnaðinum sem regluverkið um gjaldeyrishöftin er birtist – óvart líklega – afstaða stjórnvalda til atvinnulífsins. Fyrirtækjum eru settar skorður um hvernig þau mega ráðstafa eigin peningum og á þessu dæmi Samherja sést glögglega að þær skorður eru fáránlegar.

Forkólfar atvinnurekenda hafa því nokkuð til síns máls þegar þeir segja ríkisstjórnina standa sig illa gagnvart atvinnulífinu, með tilheyrandi skaða fyrir fyrirtækin og um leið fólkið í landinu. Auk gjaldeyrishaftanna koma þar til skattastefnan, afstaðan til virkjana og stóriðju og fleira.

Í gær birti hins vegar til í samskiptum ríkisstjórnarinnar og atvinnulífsins. Eftir mánaðabaráttu særðu Samtök atvinnulífsins út yfirlýsingu úr Stjórnarráðinu um ýmsar verklegar framkvæmdir sem ráðast á í. Þrátt fyrir að samtökin – og aðrir – hafi ömurlega reynslu af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við stöðugleikasáttmálann 2009 ætla þau að treysta því að nú fylgi efndir orðum.

Mikið er í húfi fyrir samfélagið. Störfum þarf að fjölga og almenn hagsæld að aukast. Þetta vita ráðherrarnir og hafa svosem vitað lengi en lítið aðhafst til að rétta stöðuna við. Ráðherrarnir vita líka að það er mikið í húfi fyrir ríkisstjórnina. Standi hún ekki við yfirlýsingar sínar nú eru dagar hennar einfaldlega taldir.

En ekki er allt unnið með fleiri störfum og auknum umsvifum í atvinnulífinu. Það þarf að hætta svona bulli eins og Samherjamenn þurftu að standa í til að komast til Brussel.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×