Innlent

Ritstjórar biðjist afsökunar

Davíð Oddsson.
Davíð Oddsson.
Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna hefur skorað á ritstjóra Morgunblaðsins að biðja Siv Friðleifsdóttur opinberlega afsökunar á skopmynd sem birtist af henni í blaðinu á laugardag. Á myndinni var hún teiknuð sem vændiskona.

Stjórnin lýsir furðu sinni á því að ritstjórarnir Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen, sem beri ábyrgð á birtingu myndarinnar, hafi ekki birt afsökunarbeiðni í blaðinu. Ef þeir sjái ekki ástæðu til afsökunarbeiðni vilji stjórnin fá útskýringu á því.- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×