Skoðun

Rússnesk rúlletta

Rökin fyrir því að Íslendingar samþykki Icesave-kröfur Breta og Hollendinga jafnast á við rök handrukkarans sem ógnar saklausum vegfarendum og hefur af þeim fé. Vegfarendurnir þora ekki að standa á rétti sínum og láta undan kúgunum.

Hvað sem því líður er ljóst að ef ríkissjóður gerir kröfur Breta og Hollendinga að skuld þá gerir hann vonda stöðu sína enn verri. Jafnvel má telja líklegt að hann stefni hraðbyri í gjaldþrot. Árið 2001 fóru 20% af heildartekjum ríkissjóðs Argentínu í vaxtagjöld, og brúttó skuldir hans voru um 54% af landsframleiðslu. Árið eftir var hann lýstur gjaldþrota. Í dag fara um 22% af heildartekjum hins íslenska ríkissjóðs í vaxtagjöld, brúttó skuldir hans eru um 90% af landsframleiðslu og hallarekstur mikill. Er þorandi að bæta Icesave-klafanum ofan á þá byrði? Skattahækkanir eru hættar að skila sér í aukinni skattheimtu svo auknum álögum á ríkissjóð þarf að mæta með lántökum og djúpum, hröðum og sársaukafullum niðurskurði á rekstri hins opinbera.

Mun Icesave-klafinn draga erlendar fjárfestingar með sér til Íslands, eins og margir hafa haldið fram? Hugsanlega. En hvaða gagn er að því ef ríkissjóður verður gjaldþrota og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur við efnahagsstjórn Íslands? Sennilega lítið. Þeir, sem vantar erlent fjármagn, verða einfaldlega að sannfæra fjárfesta um arðsemi áætlana sinna. Arðsamar fjárfestingar laða að sér fjármagn. Aðrar ekki. Ef stjórnvöld vilja laða fjármagn til landsins, ættu þau að hætta að áreita efnahagslíf landsmanna með síbreytilegum reglum, höftum, sköttum og tilheyrandi doða og óvissu.

Hvað vakir fyrir stjórnvöldum að róa svona hart að því að taka við Icesave-kröfum Breta og Hollendinga? Þingmenn Vinstri-grænna eru varla á höttunum eftir fjármagni til fleiri virkjanaframkvæmda, eða hvað? Er verið að friðþægja Alþjóðagjaldeyrissjóðnum svo hann láni okkur meira fé til að lengja í hengingaról gjaldþrots sem vofir yfir Íslandi?

Hvað vakir fyrir fjölmiðlamönnum að flytja jafneinhliða og jafnlinnulausan áróður fyrir samþykkt Icesave-laganna og raunin er? Liggur einhver Samfylkingar-þráður í gegnum þá starfsstétt?

Hvað hafa embættismenn Evrópusambandsins lofað íslenskum ráðamönnum ef þeim tekst að hengja Icesave-klafann á háls íslenskra skattgreiðenda? Icesave-lögin eru rússnesk rúlletta þar sem fimm af sex byssuhólfum eru hlaðin. Viltu spila?




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×