Innlent

Höfuðkúpubrot-inn eftir árás

Mynd úr safni og hún er sviðsett.
Mynd úr safni og hún er sviðsett.
Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás.

Manninum er gefið að sök að hafa kýlt annan mann í andlit og bringu og ýtt honum.

Fórnarlambið féll við það aftur fyrir sig og skall í jörðina. Hann hlaut blæðingar inn í bæði miðeyru, lömun hægra megin í andliti, áverka og blæðingar í heila, brot á höfuðkúpu og heyrnarskerðingu.

Maðurinn krefur árásarmanninn um skaða- og miskabætur að upphæð ríflega fjórar milljónir króna.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×