Fótbolti

Heilsan skiptir Abidal mestu máli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Barcelona hafa verið með hugann við félaga sinn, Eric Abidal, síðustu daga.
Leikmenn Barcelona hafa verið með hugann við félaga sinn, Eric Abidal, síðustu daga. Nordic Photos / AFP
Eric Abidal er á batavegi eftir að hafa gengist undir aðgerð í síðustu viku þar sem æxli var fjarlægt úr lifur hans. Umboðsmaður hans, David Venditelli, segir að kappinn sé ekki að hugsa um hvenær hann geti byrjað að spila á ný.

„Það eina sem skiptir máli er heilsan hans,“ sagði Venditelli. Abidal er á mála hjá Barcelona sem hefur reynst honum vel á þessum erfiðu tímum og hefur félagið fullan hug á að framlengja núverandi samning hans sem gildir til 2012.

„Stuðningur Barcelona hefur verið ótrúlegur og Eric er ánægður með tillögur félagsins. En við munum fyrst bíða eftir niðurstöðum rannsókna áður en við getum rætt um nýjan samning.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×