Innlent

Vilja svör um hagkvæmni Vaðlaheiðarganga

Mörður Árnason Mikilvægt er að skattborgararnir borgi ekki allt saman eftir að áætlanir bíða skipbrot, segir Mörður Árnason um Vaðlaheiðargöng.Fréttablaðið/Auðunn
Mörður Árnason Mikilvægt er að skattborgararnir borgi ekki allt saman eftir að áætlanir bíða skipbrot, segir Mörður Árnason um Vaðlaheiðargöng.Fréttablaðið/Auðunn
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Formaður samgöngunefndar Alþingis, Björn Valur Gíslason úr Vinstri grænum, hefur fallist á beiðni Marðar Árnasonar úr Samfylkingunni um sérstakan fund um fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng.

Vegagerðin og félag heimamanna norðan heiða, Greið leið, hafa stofnað nýtt hlutafélag um göngin. Þeir áætla að göngin kosti 10,4 milljarða króna, sem fáist inn með veggjöldum í framtíðinni. Félag íslenskra bifreiðaeigenda dregur útreikningana í efa og kveðst óttast að skattgreiðendur borgi hluta kostnaðarins og missi í staðinn af samgönguframkvæmdum sem félagið telur brýnni.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, og Sigmundur Ernir Rúnarsson, alþingismaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, ræddu í gær Vaðlaheiðargöngin í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni. Sagði Runólfur Sigmund þar vera „kjördæmapotara“ vegna stuðnings við málið. Sigmundur sagði málflutning Runólfs fáránlegan.

Boða á Runólf og Hrein Haraldsson, vegamálastjóra og fulltrúa frá Vaðlaheiðargöngum, á áðurnefndan fund samgöngunefndar, að því er Mörður Árnason upplýsir á bloggsíðu sinni.

„Það verður fróðlegt að heyra í þessum mönnum svara spurningum um hagkvæmni og forgangsröð – og auðvitað mikilvægast að svo sé gengið frá að ekki verði farin hin klassíska íslenska leið og skattborgararnir látnir borga allt saman eftir að hver áætlunin af annarri hefur beðið skipbrot,“ skrifar Mörður, sem kveðst munu verða „jákvæður þangað til ástæða reynist til annars“.- gar

Runólfur Ólafsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×