Tíska og hönnun

Dolce & Gabbana alsett stjörnum

Stjörnur leika stórt hlutverk hjá Dolce & Gabbana þessa dagana.
Stjörnur leika stórt hlutverk hjá Dolce & Gabbana þessa dagana.
Stjörnukjólar, -kápur og -bindi eru það sem koma skal samkvæmt Dolce & Gabbana.

Þeir Domenico Dolce og Stefano Gabbana sýndu á sér nýja og nokkuð ærslafulla hlið á tískuvikunni í Mílanó í síðustu viku. Þar voru stjörnur í aðalhlutverki og sáust þær jafnt á klæðnaði og fylgihlutum.

Í sumum tilfellum voru heilu kjólarnir prýddir stórum sem smáum stjörnum en auk þess mátti sjá þær prentaðar á kraga, vasa og víðar á móti öðru efni. Yfirbragðið varð fyrir vikið heldur ungæðislegt og óhefðbundið.

Myndir Nordicphotos/Getty.
Þá voru karlmannleg kvenmannsföt áberandi og mikið um strákalegar dragtir, vesti, skyrtur og bindi. Stjörnurnar voru ekki langt undan og mátti sjá jakka með glitrandi stjörnukraga og skrautleg stjörnubindi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×