Innlent

Alþjóðleg lögregla benti á tvo níðinga

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH) hafði nýlega hendur í hári tveggja karlmanna sem höfðu í fórum sínum myndefni sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, eftir að ábendingar höfðu borist hingað frá Interpol annars vegar og hins vegar frá Europol. Þetta staðfestir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður ofbeldisbrotadeildar LRH. Ríkissaksóknari hefur þegar ákært annan manninn, en hinn bíður ákæru.

Í rannsókn sem Interpol og Europol voru með og náði víða um Evrópu komu fram tvær íslenskar IP-tölur, sem leiddu til þess að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á tölvur og tölvugögn í báðum málunum. Í báðum tilvikum reyndist vera nokkurt magn af kynferðislegu ofbeldismyndefni með börnum, mun meira hjá þeim sem ákæra hefur enn ekki verið birt. Bæði er um ljósmyndir og hreyfimyndir að ræða.

Báðir mennirnir eru af höfuðborgarsvæðinu og báðir voru þeir með ofbeldismyndirnar heima hjá sér. Báðir eru þeir um þrítugt.

Málið á hendur þeim sem þegar hefur verið ákærður var þingfest fyrr í þessum mánuði. Sama dag voru þingfestar ákærur yfir tveimur öðrum níðingum sem voru með ofbeldismyndir af börnum í tölvubúnaði á heimili sínu. Hjá öðrum þeirra fundu tæknimenn þjónustufyrirtækis myndefnið eftir að maðurinn hafði farið með tölvu sína í viðgerð. Annar níðinganna tveggja hefur verið dæmdur í 200 þúsunda króna sekt.

Dröfn Kærnested, aðstoðarsaksóknari hjá ríkissaksóknara, segir embættið lengi hafa talað fyrir þyngri refsingu á hendur fólki sem sé með kynferðisofbeldismyndir af börnum í fórum sínum. Reynslan hafi sýnt að dómarar líti fremur til magns en grófleika í málum af því tagi. Hinir seku séu dæmdir til sektargreiðslu í yfirgnæfandi meirihluta mála.

Michael Moran, yfirmaður hjá Interpol, var nýlega staddur hér á landi á vegum Félags íslenskra rannsóknarlögreglumanna. Hann sagði þá í viðtölum við fjölmiðla að á tímum internetsins væru engin landamæri. Barnaníðingar sem notuðu internetið til að dreifa kynferðislegum ofbeldismyndum gætu verið hvar sem er í veröldinni og trúlega einnig hér á landi.

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×