Körfubolti

KR nálægt því að leggja Hamar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Butler var frábær í kvöld. Mynd/Daníel
Butler var frábær í kvöld. Mynd/Daníel

Jaleesa Butler hélt upp á það í kvöld að vera valinn besti leikmaður fyrri hluta Iceland Express-deildar kvenna með því að klára KR. Hamar því búið að vinna 12 leiki í röð í deildinni.

KR var ekki fjarri því að leggja Hamar fyrst allra en magnaður varnarleikur Butler sá til þess að sigurganga Hamars heldur áfram.

KR var yfir þegar skammt var eftir. Guðbjörg Sverrisdóttir kom þá Hamri yfir, 55-56, með sniðskoti

Í næstu sókn KR reyndi Hildur Sigurðardóttir skot en Butler varði það. Hamar klúðraði í kjölfarið tveim vítaskotum. KR fór í sókn og aftur fór Butler illa með Hildi. Í þetta skiptið stal hún boltanum af Hildi.

Hamar skoraði svo úr einu víti á lokaandartökum leiksins og tryggði sér sætan sigur.

KR-Hamar  55-57

Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 14, Chazny Paige Morris 13, Signý Hermannsdóttir 8, Hafrún Hálfdánardóttir 7, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 6, Hildur Sigurðardóttir 3 (12 fráköst), Helga Einarsdóttir 2 (10 fráköst), Þorbjörg Friðriksdóttir 2.

Stig Hamars: Jaleesa Butler 20 (9 fráköst), slavica Dimovska 14, Kristrún Sigurjónsdóttir 9, Fanney Guðmundsdóttir 7, Guðbjörg Sverrisdóttir 5, Íris Ásgeirsdóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×