Fótbolti

Messi með þrennu í sigri Barca á Atletico

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi skorar hér eitt marka sinna í kvöld.
Messi skorar hér eitt marka sinna í kvöld.

Barcelona náði í kvöld tíu stiga forskoti á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar er Börsungar unnu góðan heimasigur, 3-0, á Atletico Madrid.

Eins og svo oft áður var Lionel Messi allt í öllu hjá Barcelona en hann skoraði fyrst á 17. mínútu og aftur tíu mínútum síðar.

Barcelona átti leikinn í fyrri hálfleik en rimman jafnaðist nokkuð í þeim seinni. Það stöðvaði þó ekki Messi frá því að fullkomna þrennuna áður en yfir lauk.

Real Madrid er nú tíu stigum á eftir Barcelona en á reyndar einn leik inni. Miðað við þá stöðu sem upp er kominn þarf Real líklega að vinna alla þá leiki sem það á eftir í vetur og vona svo það besta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×