Fótbolti

Messi hélt upp á Gullboltann með því að skora þrennu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi sýnir Gullboltann fyrir leikinn í kvöld.
Lionel Messi sýnir Gullboltann fyrir leikinn í kvöld. Mynd/AP
Lionel Messi skoraði þrennu í 5-0 sigri Barcelona á b-deildarliðinu Real Betis í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska Konungsbikarnum. Messi sýndi stuðningsmönnum Barcelona Gullboltann fyrir leik og sýndi af hverju hann fékk hann í leiknum sjálfum.

Messi skoraði fyrsta markið eftir hálftíma leik þegar hann fékk boltann frá Andrés Iniesta og lyfti boltanum yfir markvörðinn. Hann skoraði annað mark sitt af harðfylgni á 62. mínútu og innsiglaði þrennuna þegar hann slapp einn í gegn ellefu mínútum síðar.

Pedro og Seydou Keita bættu síðan við mörkum og tryggðu Barcelona öruggan sigur en það ætti aðeins að vera formsatriði að spila seinni leikinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×