Fótbolti

Ronaldo með tvennu í stórsigri Real

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo fagnar öðru marka sinna í kvöld.
Ronaldo fagnar öðru marka sinna í kvöld.

Real Madrid neitar að gefast upp í baráttunni við Barcelona um spænska meistaratitilinn. Real vann stórsigur, 4-1, á Real Sociedad í kvöld.

Cristiano Ronaldo skoraði tvö marka Real í leiknum en hin mörkin gerðu Kaká og Emmanuel Adebayor. Mark Sociedad var sjálfsmark hjá Alvaro Arbeloa.

Real er nú sjö stigum á eftir toppliði Barcelona en liðin hafa leikið jafn marga leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×