Fótbolti

Andres Iniesta: Árið 2011 verður erfitt fyrir okkur í Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andres Iniesta.
Andres Iniesta. Mynd/Nordic Photos/Getty
Andres Iniesta hefur varað félaga sína í Barcelona-liðinu við að þeir geta ekki gengið að neinu vísu á nýju ári þrátt fyrir frábært gengi liðsins á árinu 2010. Fyrsti leikur Barcelona á árinu 2011 verður deildarleikur á móti Levante á sunnudaginn.

„Við erum staðráðnir í að byrja nýja árið vel en við gerum okkur grein fyrir því að árið 2011 verður erfitt," sagði Andres Iniesta í viðtali á heimasíðu Barcelona.

„Við getum ekkert verið vissir um það að vinna titla eða endurtaka góðan árangur okkur á árinu 2010 en ég fullvissa okkar stuðningsmenn um það að við munum gera allt í okkar valdi til þess að vinna alla titla í boði. Ég er viss um að liðið mun ekki bregðast neinum," sagði Iniesta.

„Ég vona að gott gengi okkar haldi áfram. Við verðum að taka upp þráðinn að nýju og halda áfram að spila vel. Við spiluðum marga frábæra leiki á síðasta ári og þar á meðal er sigurinn á Real Madrid sem allir muna eftir," sagði Iniesta.

Hann er ánægður með nýja leikmanninn Ibrahim Afellay. „Hann verður mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður og það er margt með honum. Við munum reyna að hjálpa honum að aðlagast öllu hjá okkur sem fyrst," sagði Iniesta.

Spænskir miðlar hafa heimildir fyrir því að Andres Iniesta verði kosinn besti knattspyrnumaður heims og fái Gullbolta FIFA. „Það er frábært að vera í hópi þriggja efstu og það er enn betra fyrir bæði mig og mitt félag Barcelona að ég sér þar með Leo og Xavi. Að vinna Gullboltann væri eitthvað sem ég hef ekki einu sinni dreymt um að afreka og ég get ekki einu sinni ímyndað mér hvernig tilfinningin yrði að vinna hann," sagði Iniesta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×