Sporting Gijón stöðvaði sigurgöngu Barcelona í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2011 20:59 Andres Iniesta hjá Barcelona í baráttu við Nacho Novo, leikmann Sporting de Gijon. Mynd/AP
Sporting Gijón varð í kvöld aðeins þriðja liðið í spænsku úrvalsdeildinni í vetur til þess að ná stigi af Spánarmeisturum Barcelona þegar Sporting Gijón og Barcelona gerðu 1-1 jafntefli. Þetta voru fyrstu stigin sem Barcelona tapar á útivelli á tímabilnu. Barcelona var búið að vinna sextán deildarleiki í röð fyrir leikinn en er nú með átta stiga forskot á Real Madrid sem á leik inni á móti Espanyol á morgun. Barcelona var búið að vinna alla deildarleiki sína síðan 3. október þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Real Mallorca og þetta var jafnframt fyrsti útileikur liðsins á tímabilinu sem Barcelona vinnur ekki. David Barral kom Sporting Gijón yfir strax á 16. mínútu leiksins og þannig var staðan í 64 mínútur. David Villa jafnaði leikinn á 80.mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá Lionel Messi. Villa sá að markvörður Sporting var kominn of framarlega og lyfti boltanum lagleg yfir hann frá vítalínu. Barcelona var í stórsókn allan leikinn og pressan var gríðarleg í seinni hálfleiknum. Sporting Gijón tókst hinsvegar að halda út og tryggja sér stig. Liðið er í 13. sæti deildarinnar en hafði unnið 3 af síðustu 4 leikjum sínum.
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira