Körfubolti

NBA í nótt: Sacramento vann Lakers

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Troy Murphy og JJ Hickson í baráttunni í nótt.
Troy Murphy og JJ Hickson í baráttunni í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Sacramento Kings byrjaði tímabilið í NBA-deildinni með látum en liðið gerði sér lítið fyrir og skellti stórliði LA Lakers, 100-91, í nótt. Fjölmargir leikir fóru þá fram í deildinni.

Lakers hefur því tapað fyrstu tveimur leikjum sínum en liðið mátti sætta sig við tap gegn Chicago Bulls á jóladag. Er það í fyrsta sinn í níu ár sem það gerist og ljóst að nýr þjálfari liðsins, Mike Brown, hefur örugglega óskað sér betri byrjun með liðið.

Marcus Thornton skoraði 27 stig fyrir Sacramento, þar af tólf í fjórða leikhluta. Hjá Lakers var Kobe Bryant stigahæstur með 28 stig en Metta World Peace skoraði nítján stig. Fyrir þá sem ekki vita er það nafnið sem Ron Artest tók sér þann 16. september síðastliðinn.

„Við eigum enn marga leiki eftir," sagði World Peace. „Það er allt í himnalagi. Allt verður frábært," bætti kappinn við.

Golden State byrjaði tímabilið einnig með miklum krafti en liðið van Chicago í nótt, 99-91. Mark Jackson er nýr þjálfari Golden State en Monta Ellis skoraði 26 fyrri liðið í leiknum.

Derrick Rose náði sér ekki á strik með Chicago og skoraði þrettán stig. Golden State náði mest nítján stiga forystu í leiknum en Chicago náði þó að minnka muninn í fimm á lokamínútunni. Úrslitin réðust þó á vítalínunni en Dominic McGuire setti niður sex víti á síðustu 47 sekúndum leiksins.

Meistararnir í Dallas Mavericks töpuðu fyrir Denver, 115-93. Dallas hefur því tapað fyrstu tveimur leikjum tímabilsins en útlitið er ekkert sérstaklega bjart hjá liðinu. Dirk Nowitzky skoraði 20 stig í leiknum fyrir Dallas en spilaði ekkert í fjórða leikhluta, alveg eins og í tapinu fyrir Miami á jóladag.

Úrslit næturinnar:

New Jersey - Washington 90-84

Charlotte - Milwaukee 96-95

Orlando - Houston 104-95

Toronto - Cleveland 104-96

Indiana - Detroit 91-79

Oklahoma City - Minnesota 104-100

Denver - Dallas 115-93

New Orleans - Phoenix 85-84

Sacramento - LA Lakers 100-91

Portland - Philadelphia 107-103

Golden State - Chicago 99-91

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×