Fótbolti

Guardiola sakar Marca um lygar

Villa er ekki til sölu.
Villa er ekki til sölu.
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, segir að það sé ekkert hæft í þeim fregnum að félagið muni reyna að selja framherjann David Villa í janúar.

Spænska blaðið Marca hélt þessu fram í morgun og sagði að það yrði slegist um leikmanninn þegar markaðurinn opnar strax eftir áramót.

Þessi þrítugi framherji hefur ekki algjörlega þótt standa undir væntingum á Camp Nou þó svo hann sé búinn að skora 32 mörk í 75 leikjum.

"Þetta eru lygar hjá Marca. Það stendur ekki til að selja neinn leikmann," sagði Guardiola.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×