Fótbolti

Barcelona og Real Madrid hafa engan áhuga á Torres

Það er mikið rætt núna hvert Fernando Torres fari í janúar en hermt er að Chelsea sé til að selja hann á 20 milljónir punda enda hefur leikmaðurinn engan veginn staðið undir væntingum hjá félaginu.

Spænsku stórliðin Barcelona og Real Madrid hafa engan áhuga á því að bjarga ferli Torres og vilja ekki taka áhættuna á því að kaupa hann.

Einnig kemur ekki til greina að hann fari aftur til Atletico Madrid enda er félagið nánast á hausnum. Það hefur því ekki efni á Torres.

Margir stuðningsmenn Liverpool vilja sjá Torres aftur í búningi félagsins en ekkert hefur heyrst af því að Liverpool vilji kaupa hann aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×