Fótbolti

Hallgrímur búinn að semja við SönderjyskE

Hallgrímur í viðtali við Guðmund Benediktsson.
Hallgrímur í viðtali við Guðmund Benediktsson.
Húsvíkingurinn Hallgrímur Jónasson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið SönderjyskE.

Hallgrímur hefur slegið í gegn hjá félaginu og spilað vel síðan hann kom þangað frá sænska félaginu GAIS.

"Þetta var það sé ég og félagið vildum þannig að það er gott að það gekk eftir," sagði Hallgrímur við Vísi í dag.

Nánar verður rætt við Hallgrím í Fréttablaðinu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×