Fótbolti

Fjölskyldustemning hjá Real Madrid

Þýski landsliðsmaðurinn Mesut Özil segir að lykillinn á bak við gott gengi Real Madrid í vetur sé sá að Jose Mourinho sé búinn að byggja fjölskyldustemningu hjá liðinu.

"Við erum eins og lítil fjölskylda og það eru allir til í að fórna sér fyrir félagann. Það fær alla í hópnum til þess að líða vel og það skilar síðan árangri," sagði Özil.

Real vann góðan sigur á Valencia um helgina og er á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar. Nú er komið að Meistaradeildinni þar sem Real getur tryggt sér efsta sætið í sínum riðli með sigri á Dinamo Zagreb.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×