Fyrsta tap Barcelona síðan í apríl 26. nóvember 2011 00:01 Valera fagnar sigurmarkinu fyrir framan svekktan Messi.
Barcelona tapaði sínum fyrsta leik síðan 30. apríl í kvöld. Þá sóttu Evrópumeistararnir lið Getafe heim og máttu sætta sig við 1-0 tap. Börsungar voru arfaslakir í leiknum og verða að sætta sig við að vera nú sex stigum á eftir Real Madrid. Fyrri hálfleikur var tíðindalítill en á 67. mínútu fóru hlutirnir að gerast. Þá kom Valera liði Getafe yfir með laglegum skalla eftir hornspyrnu. Leikmenn Barcelona voru slegnir. Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, var fljótur að bregðast við þessari erfiðu stöðu og setti tvo ferska menn inn um leið. Börsungar hófu að sækja af miklum móð en þeir voru ekki sjálfum sér líkir í þessum leik. Þeim gekk ekkert að opna Getafe-vörnina og ekkert alvöru færi leit dagsins ljós. Í uppbótartíma náði Lionel Messi að koma boltanum yfir línuna en Seydou Keita var dæmdur rangstæður. Dómurinn var rangur því það var leikmaður Getafe sem rak tána í boltann og gaf á Keita. Ótrúleg dramatík var á lokasekúndum leiksins þegar Messi komst einn í gegn en skot hans fór í stöngina. Nokkrum andartökum síðar var leikurinn flautaður af og heimamenn fögnuðu hreint ógurlega.
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira