Fótbolti

Norsku deildinni lauk í dag með átta leikjum - Úrslit dagsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mustafa Abdellaoue gerði þrennu í dag fyrir Tromsø.
Mustafa Abdellaoue gerði þrennu í dag fyrir Tromsø.
Norsku úrvalsdeildinni lauk í dag þegar lokaumferðin fór fram. Átta leikir fóru fram í Noregi í dag, en Molde hafði tryggt sér meistaratitilinn fyrir nokkru.

Rosenborg sigraði Viking á heimavelli 3-2, en Indriði Sigurðsson lék allan leikinn í liði Viking. Birkir Bjarnason kom inná sem varamaður fyrir félagið.

Tromsø  rótburstaði Start 6-1 á útivelli, en Mustafa Abdellaoue gerði þrennu fyrir Tromsø sem hafnaði í öðru sæti deildarinnar, en Start féll niður í aðra deild eftir að hafa lent í næstneðsta sæti.

Sogndal gerði sér lítið fyrir og sigraði Noregsmeistarana í Molde 2-1 á heimavelli en Tore André Flo gerði bæði mörk Sogndal.

Vålerenga sigraði Stabæk 2 – 0 á heimavelli, en þeir Pálmi Rafn Pálmason og Bjarni Ólafur Eiríksson léku allan leikinn fyrir Stabæk. Veigar Páll Gunnarsson kom inná sem varamaður í liði Vålerenga. Vålerenga hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar en Stabæk í því tíunda.

Úrslit dagsins í Noregi:

Rosenborg – Viking  3 - 2 

Start - Tromsø 1 - 6 

Sarpsborg 08 - Odd Grenland   3 - 2 

Sogndal  - Molde  2 - 1

Haugesund – Strømsgodset   5 - 1 

Lillestrøm - Fredrikstad   0 - 0

Vålerenga – Stabæk   2 - 0

Aalesund – Brann  3 - 1 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×