Fótbolti

Búinn að skora tvisvar frá miðju á tímabilinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Inigo Martínez, tvítugur miðvörður Real Sociedad, tryggði liði sínu 3-2 sigur á Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni um helgina með ótrúlegu skoti frá miðju. Þetta er samt ekki í fyrsta sinn sem Martínez skorar frá miðju á tímabilinu því skoraði einnig frá miðju fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan.

Sigurmarkið hans Martínez í gær kom í uppbótartíma þegar hann kom markverði Real Betis á óvart með óvæntu þrumuskoti en Real Sociedad var fyrir leikinn búið að leika átta leiki í röð án þess að vinna.

Inigo Martínez er á sínu fyrsta ári með aðalliði Real Sociedad og það er óhætt að segja að hann sé búinn að slá í gegn. Fyrsta markið sem hann skoraði fyrir liðið var í 1-2 tapi á móti Athletic Bilbao 2. október síðastliðinn en það mark kom frá miðju eins og sigurmarkið í gær.

Það er hægt að sjá sigurmarkið hans í gær með því að smella hér fyrir ofan en markið hans frá 2. október má sjá með því að smella hér.

Martínez hefur reyndar verið fastagestur á Youtube-vefnum á tímabilinu því hann skoraði einnig ótrúlegt sjálfsmark með hælnum í 21 árs landsleik Spánverjar á móti Georgíu. Það má sjá það með því að smella hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×