Fótbolti

Casillas jafnar leikjamet Zubizarreta á Wembley í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Iker Casillas.
Iker Casillas. Mynd/Nordic Photos/Getty
Iker Casillas, markvörður og fyrirliði Heims- og Evrópumeistaraliðs Spánverja, jafnar leikjamet spænska landsliðsins í dag þegar Spánn mætir Englandi í vináttulandsleik á Wembley.

Þetta verður 126. landsleikur Casillas fyrir Spán en hann lék sinn fyrsta A-landsleik á móti Svíum 3. júní 2000 þegar hann var aðeins 19 ára og 14 daga gamall.

Casillas, sem er enn bara þrítugur, mun þarna jafna leikjamet Andoni Zubizarreta sem lék 126 leiki í marki spænska landsliðsins frá 1985 til 1998.

Casillas hefur aðeins fengið á sig 74 mörk í þessum 125 landsleikjum þar af 49 mörk í 79 leikjum í keppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×