Fótbolti

Ronaldo og Arbeloa báðir meiddir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Þeir Cristiano Ronaldo og Alvaro Arbeloa gátu ekki æft með Real Madrid í gær þar sem þeir meiddust báðir í leikjum með landsliðum sínum í landsleikjafríinu.

Báðir eru að glíma við tognanir í lærisvöðva en óvíst er hvort að þeir verði orðnir klárir í slaginn þegar að Real mætir Valencia í spænsku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Alls voru fjórtán leikmenn Real Madrid að spila með landsliðum sínum í vikunni en Ronaldo skoraði tvö mörk í 6-2 sigri Portúgals á Bosníu í umspili undankeppni EM 2012.

Arbeloa var í liði Spánar sem mætti Englandi og Kostaríka. Real Madrid er á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar, með þriggja stiga forystu á Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×