Fótbolti

Sacchi: Messi að stinga Ronaldo af

Messi og Ronaldo.
Messi og Ronaldo.
Arrigo Sacchi, fyrrum þjálfari AC Milan, er afar hrifinn af Lionel Messi, eins og margir fleiri, og segir að hann sé allt öðrum gæðaflokki en Cristiano Ronaldo.

Sacchi er þó á því að báðir séu stórbrotnir leikmenn en segir að Ronaldo sé fjarri því að skáka Messi á vellinum.

"Cristiano Ronaldo er frábær leikmaður. Hann hefur samt ekki náð að þróa sinn leik á sama hátt og Messi á undanförnum árum," sagði Sacchi.

"Messi er hreinn og tær demantur en Ronaldo nær ekki að skapa sömu hughrif á vellinum. Hann hefur gæði en fótbolti er ekki leikur ellefu einstaklinga. Kannski hefur hann aðeins misst móðinn."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×