Fótbolti

Real Madrid ætlar ekki að versla í janúar

Það þarf kannski ekki að koma neinum á óvart en Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er ánægður með leikmannahópinn sinn og ætlar ekki að kaupa neinn í janúarglugganum.

Real hefur eytt fáranlega háum fjárhæðum í leikmenn síðan Mourinho kom til félagsins og nú er kominn pressa á hann að skila bikurum til baka.

"Ég vil ekki fleiri leikmenn. Við erum í fínum málum" sagði Mourinho.

Real leikur gegn Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×