Fótbolti

Esteban Granero vann Go-Kart keppni Real Madrid

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leikmenn Real Madrid gerðu sér glaðan dag í vikunni þegar þeir fóru í GO-Kart kappakstur og var að sjálfsögðu mikil keppni á milli leikmanna liðsins.

Um var að ræða upptöku á auglýsingaherferð hjá bílaframleiðandanum Audi og var þetta allt tekið upp.

Esteban Granero fagnaði sigri í keppninni og átti besta tímann, en Karim Benzema var aðeins 0,6 sekúndum á eftir honum.  Leikmenn liðsins fengu síðan eftir keppnina allir nýja Audi bíla. Hér að ofan má sjá myndbrot frá keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×