Fótbolti

Enginn afsláttur hjá Mourinho

Casillas var sektaður í dag.
Casillas var sektaður í dag.
Það er ekkert elsku mamma hjá Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid, og það fékk markvörðurinn, Iker Casillas, að reyna í dag.

Casillas festist í umferðarteppu og kom of seint á æfingu. Mourinho var ekki til í að hlusta á neinar afsakanir og sektaði markvörðinn.

Gríðarleg rigning var í Madrid sem stöðvaði alla umferð þannig að Casillas gat lítið gert við því að koma of seint.

Hann skrifaði á Facebook-síðu sína að vikan hefði byrjað illa. Hann sagði frá sektinni og biti mynd af umferðarteppunni sem hann lenti í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×