Fótbolti

Beckenbauer: Barcelona er betra en spænska landsliðið

vísir/getty
Þeir eru margir sem dást að spænska liðinu Barcelona. Þar á meðal er þýska goðsögnin Franz Beckenbauer sem segir að Barcelona sé betra lið en spænska landsliðið. Ástæðan er Lionel Messi.

"Barcelona hefur sett ákveðið viðmið í knattspyrnuheiminum. Liðið spilar fullkominn fótbolta. Það ér ótrúlegt að horfa á liðið spila," sagði Keisarinn.

"Barca er jafnvel betra en spænska landsliðið því liðið hefur Lionel Messi. Það þarf mikið að gerast svo liðið vinni ekki Meistaradeildina enn og aftur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×