Fótbolti

Maradona sagði Mourinho að kaupa Aguero

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Maradona ásamt unnustu sinni.
Maradona ásamt unnustu sinni.
Diego Maradona segist hafa ráðlagt Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid, að semja við Sergio Aguero. Það hafi verið nauðsynlegt svo Real geti keppt við Barcelona.

"Real Madrid þarf að vera með ofurlið til þess að keppa við Barcelona. Sergio Aguero hefði verið fullkominn fyrir Madrid og með hann innanborðs hefði Real getað keppt við Barca," sagði Maradona en Aguero er tengdasonur hans.

"Ég hef ráðlagt Mourinho oftar en einu sinni en Real Madrid hlustar ekki á mig. Nú er Barcelona með mikið forskot á Real."

Aguero hefur farið á kostum með Man. City í upphafi leiktíðar eins og kunnugt er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×