Fótbolti

Real Madrid liðið markalaust í öðrum leiknum í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo í leiknum í kvöld.
Cristiano Ronaldo í leiknum í kvöld. Mynd/AP
Real Madrid náði aðeins markalausu jafntefli á útivelli á móti Racing Santander í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Real Madrid hefur þar með tapað fimm stigum í síðustu tveimur leikjum en liðið náði ekki að skora í báðum þessum leikjum.

Real Madrid tapaði 0-1 á móti Levante á útivelli um helgina en hafði áður unnið 4-2 sigur á Getafe og 6-0 sigur á Zaragoza.

Barcelona mætir Valencia á útivelli seinna í kvöld og getur þar náð þriggja stiga forskoti á Jose Mourinho og lærisveina hans.

Real Madrid er eins og er með 7 stig af 12 mögulegum í 9. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×