Fótbolti

Barcelona ræður stjörnukokk fyrir krakkana sína

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi, Xavi og Cesc Fabregas komu allir upp úr unglingastarfi Barcelona.
Lionel Messi, Xavi og Cesc Fabregas komu allir upp úr unglingastarfi Barcelona. Mynd/AP
Unglingastarf Barcelona hefur skilað mörgum frábærum leikmönnum á síðustu árum eða heimsklassafótboltamönnum eins og Lionel Messi, Cesc Fabregas, Andrés Iniesta og Xavi Hernández svo einhverjir séu nefndir.

Börsungar ætla ekkert að gefa eftir í umgjörð sinni í kringum framtíðarfótboltamenn félagsins en unglingastarf félagsins fer fram á La Masia æfingasvæðinu sem er nálægt Camp Nou leikvanginum í Barcelona.

Forráðamenn Barcelona hafa nú ráðið stjörnukokkinn Ferran Adria til að taka matseðilinn á La Masia í gegn. Nýja slagorðið í starfinu eru "Við erum það sem við gerum og við erum það sem við borðum."

Ferran Adria var mjög virtur kokkur á Katalóníu-svæðinu og það var setið um borðin á El Bulli veitingarstaðnum þegar hann var yfirkokkur þar. Adria þótti nýstárlegur í réttum sínum en mun fá það verkefni að elda hollan og góðan mat fyrir fótboltastrákana í Barcelona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×