Fótbolti

Pepe ekki alltaf sá eðlilegasti

Þeir sem fylgjast með spænska boltanum vita að Pepe gefur sig allan í verkefnið. Hann er stundum eins skapstyggt og mannýgt naut. Gæti hreinlega dregið lítinn vatnsdropa yfir eyðimörk á reiðinni einni saman. Gríðarlega oft fer hann yfir strikið þannig eftir er tekið.

Hann hefur oftar en ekki komið sér í fréttirnar fyrir rangar sakir innan vallar. Spænskir fjölmiðlar nota hann oft til að skjóta á Real Madrid, því ekki er langt síðan að Jose Mourinho stjóri Real sagði að komið væri fram við Real eins og glæpamenn.

Spænskir fjölmiðlar hafa farið hamförum í vikunni of rifjað upp þrjú hrikalega ljót brot Pepe. Er nema von að menn spyrji sig. Hvaða skrúfa er laus í kollinum á Pepe?

Hér að ofan má sjá árás Pepe á Xavi Torres, leikmann Levante, um síðustu helgi.

Og hver getur gleymt þessu myndbandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×