Fótbolti

Real Madrid vann og hefur tveggja stiga forskot á Barca

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karim Benzema skoraði tvö mörk í kvöld.
Karim Benzema skoraði tvö mörk í kvöld. Mynd/AP
Real Madrid vann 4-2 sigur á nágrönnum sínum í Getafe í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og náði þar með tveggja stiga forystu á erkifjendur sína í Barcelona sem gerðu 2-2 jafntefli við Real Sociedad fyrr í kvöld.

Karim Benzema kom Real Madrid í 1-0 eftir þrettán mínútur eftir sendingu frá Mesut Özil en Miku jafnaði fyrir Getafe á 39. mínútu.

Cristiano Ronaldo kom Real aftur yfir á 60.mínútu með marki úr umdeildri vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Ronaldo lagði síðan upp mark fyrir Karim Benzema níu mínútum síðar.

Miku minnkaði aftur muninn í eitt mark, 3-2, á 74. mínútu en varamaðurinn Gonzalo Higuaín innsiglaði sigur Real-manna á 88. mínútu.

Real Madrid hefur unnið tvo fyrstu leiki sína og státar af markatölunni 10-2. Barcelona hefur fjögur stig og markatöluna 7-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×