Fótbolti

Strákurinn hans Zinedine Zidane æfði með aðalliði Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zinedine Zidane gefur hér eiginhandaráritun.
Zinedine Zidane gefur hér eiginhandaráritun. Mynd/Nordic Photos/Getty
Synir Zinedine Zidane hafa staðið sig vel með unglingaliðum Real Madrid og nú er sá elsti, hinn 16 ára gamli Enzo, búinn að fá sitt fyrsta tækifæri til að æfa með öllum stjörnunum í aðalliði Real.

Enzo Fernandez, sem er miðjumaður, spilar með 17 ára liði Real Madrid en fékk að æfa með aðalliðinu á þriðjudaginn. Hann fékk þar að reyna sig meðal stórstjarna eins og Cristiano Ronaldo, Mesut Özil og Kaka.

Zinedine Zidane er í starfsliði þjálfarans Jose Mourinho og horfði að sjálfsögðu á æfinguna. Spænskir fjölmiðlamenn þóttustu strax sjá sterkt samband á milli Enzo og Mourinho.

Zidane á fjóra syni með eiginkonu sinni Véronique Fernandez: Enzo Zidane Fernandez (fæddur 24. mars 1995), Luca Zinedine Zidane Fernandez (13. maí 1998), Theo (18. maí 2002) og Elyaz Zidane Fernandez (26. desember 2006).

Enzo gæti því verið sá fyrsti af mörgum sem fylgja í fótspor föðurs síns og spila fyrir Real Madrid en það er reyndar langt á milli þess að æfa með aðalliðinu og fá að spreyta sig á vellinum í alvöru leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×