Fótbolti

Mourinho: Síðasta tímabil var mitt besta á ferlinum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pep Guardiola og Jose Mourinho.
Pep Guardiola og Jose Mourinho. Nordic Photos / Getty Images
Jose Mourinho hefur unnið marga titla á ferlinum en segir að síðasta tímabil hafi verið sitt besta hingað til - þrátt fyrir að Real Madrid hafa bara landað einum bikarmeistaratitli.

Barcelona vann alla stóru titlana á síðasta tímabili og óhætt að segja að Real hafi í staðið í skugga Börsunga. En Mourinho, sem tók við Real fyrir rúmu ári síðan, var ánægður með tímabilið.

„Það er vissulega rétt að þetta var í fyrsta sinn sem ég vann ekki deildarmeistaratitil á mínu fyrsta ári hjá nýju félagi en þetta var samt besta tímabilið mitt hingað til,“ sagði Mourinho við spænska fjölmiðla í vikunni.

„Lið undir minni stjórn hefur aldrei fengið fleiri stig, unnið fleiri leiki eða skorað fleiri mörk. Þetta var í raun frábært tímabil.“

„Raunin var sú að við enduðum í öðru sæti, unnum bikarinn og komust í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Miðað við að þetta var fyrsta tímabilið mitt hjá Real var það gott.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×